Leiðin þín spil eftir Valgerði Bachmann
kr.6.990
Leiðin þín – spil eftir Valgerði Bachmann
Leiðin þín eru falleg og persónuleg spil sem hægt er að draga úr fyrir daginn eða vikuna. Spil er alls 63 og koma í fallegum kassa. Hvert spil ber með sér létt og skemmtilegt ljóð sem getur gefið þér hugleiðingu, innblástur eða litla áminningu fyrir daginn.
Ljóðin eru eftir Valgerði Bachmann og samdi hún þau allt frá yngri árum sínum og fram að útgáfu spilanna.
Hönnun spilanna er einnig eftir Valgerði. Rósin framan á spilunum hefur sérstaka og persónulega merkingu fyrir hana. Hún tengir rósina við ömmu sína, Rósu, sem lést þegar Valgerður var mjög ung. Rósin er því tákn um minningu, kærleika og tengingu sem hefur fylgt Valgerði í gegnum lífið.
Þú getur dregið eitt spil fyrir daginn eða sjö spil fyrir vikuna og leyft orðunum að fylgja þér á þinni leið.
Leiðin þín
Alheimurinn ávallt við hlið þér stendur,
réttir þér alltaf sínar hendur.
Spilin opna þá leið sem þú ert á,
og hvað er gott að einblína og sjá.
Dragðu spil fyrir daginn eða vikuna þína,
leyfðu spilinu þínu yfir daginn þinn að skína.
Ef fyrir vikuna þú vilt fá að sjá,
sjö spil taktu bunkanum frá.
Spilið leiðina þína þekkir,
og hjálpa þér að leysa, ef það koma hlekkir.
Það eina sem þú þarft að gera,
er að leyfa þér að finna og uppskera.
Með kærleikskveðju
Valgerður Bachmann og Alheimsorka
4 á lager
Alheimsorka.is
Upplýsingar
Alheimsorka efh
Bílshöfða 16 110 Reykjavík
Valgerður Bachmann
s: 7778006
Email: alheimsorka@alheimsorka.is







