Litla stafabókin
kr.1.870
Litla stafabókin – íslenska stafrófið
Litla stafabókin er lítil bók fyrir litlar hendur. Hún er aðeins 8,5 × 8,5 cm, svo hún passar einstaklega vel í litlar barnahendur og er auðvelt fyrir barnið að halda á henni og fletta sjálft.
Á hverri opnu mætir barninu bókstafur öðrum megin og mynd hinum megin af einhverju sem byrjar á sama staf. Þannig fær barnið að kynnast íslenska stafrófinu í gegnum myndir og tengja stafina við hluti sem það þekkir.
Uppsetning og hönnun bókarinnar er eftir Valgerði Bachmann. Hugmyndin að Litlu stafabókinni varð til þegar Valgerður hannaði bókina fyrir son sinn. Úr varð lítil og persónuleg stafabók sem nú getur hjálpað fleiri litlum höndum að taka sín fyrstu skref inn í heim stafanna.
Litla stærðin gerir bókina sérstaklega krúttlega og skemmtilega – lítil bók fyrir litlar hendur. ❤️
19 á lager
Alheimsorka.is
Upplýsingar

Flýtileið
- Alheimsorka dragðu spil (36)
- Fréttir (31)
- Uncategorized (6)
- vangaveltur (4)





