Djúpslökun með Valgerði Bachmann Pure Deli og hraundis.is
DJÚPSLÖKUN MEÐ VALGERÐI BACHMANN, Pure Deli og hraundis.is
- október
Í fallegu umhverfi Guðmundarlundar
Húsið opnar kl. 17:30
Djúpslökun hefst stundvíslega kl. 18:00
Dyrum verður lokað kl. 18:00
Kvöld þar sem við komum saman til að slaka á, tengjast og eiga notalega stund saman.
Djúpslökunin sjálf tekur um 60 mínútur, en gefðu þér aðeins meiri tíma fyrir kvöldið. Fyrir og eftir slökunina gefst rými til að tengjast, spjalla og njóta samverunnar.
Ilmur úr íslenskri náttúru – hraundis.is
Hraundís ilmolíufræðingur, ætlar að bjóða ykkur upp á ilmöndun. Hún blandar saman fyrir ykkur ilmkjarnaolíum sem hafa róandi áhrif á taugakerfið til að ná betri slökun og ró.
Pure deli ferskur ný pressaður safi -frá puredeli.is
Þú færð ferskan Pure Deli safi með epli, sítrónu, engifer og spínati.
Djúpslökun • tenging • samvera • djús úr náttúrunni • ilmur úr náttúrunni
Valgerður leiðir djúpslökunina þar sem 17 ára reynsla, þekking og innsæi mætast í einni heild.
Hún er jógakennari og Yoga Nidra kennari, dáleiðari, markþjálfi, spákona og miðill og hefur einnig menntun og reynslu í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun.
Verð: 7.990 kr.
Bókun fer fram á alheimsorka.is
Þú þarft að taka með þér:
Jógadýnu
Teppi
Kodda ( ef þú vild )
Augnbindi
Komdu í þægilegum fötum.
Þú þarft ekkert að kunna og engu að ná, bara vera
Valgerður Bachmann, Pure Deli og hraundis.is











