Um Alheimsorka
Valgerður Bachmann spákona og miðill
Jón Lúðvíks og Valgerður Bachmann
Jón Lúðvíks miðill
Valgerður Bachmann hefur starfað opinberlega í andlegum málefnum síðan 2009 og bíður upp á einkatíma í spá og miðlun. Valgerður er Reikimeistari, með Höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun og heilun. Er jóga og jóga Nidra kennari, haldið jóga námskeið fyrir börn og jóga Nidra tíma fyrir fullorðna.
Haldið Sígaunanámskeið, Alheimsorkunámskeið og Draumanámskeið, er Markþjálfi, hefur unnið mikið með börnum og fullorðnum tengt andlega málefnum, hreinsað hús og haldið skyggnilýsingar um landið.
Rithöfundur og Útgefandi
Alheimsorkuspilin 2013
Written in the stars spilin 2017
Litla stafabókin 2018
Hulda og töfrasteinninn bók 2020.
Litla tölubókin 22.08. 2021
Spilin Leiðin þín 2021
Valgerður og Jón eru par og hafa bæði unnið lengi í andlegum málefnum og starf mikið saman. Þau bæði vinna hjá Sálarannsóknarfélagi Íslands og bjóða einnig upp á tíma sjálf á höfuðborgarsvæðinu. Hafa haldið mikið af skyggnilýsingum um allt land, bæði fyrir stóra og litla hópa.
Jón Lúðvíks hefur starfað opinberlega síðan 2007 og bíður upp á einkatíma í miðlun, Trans fundi og orku heilun.
Hann hefur haldið námskeið í miðlun, Trans og orku heilun.
Jón Lúðvíks hefur hjálpað Trans hringjum og Bænahópum. Einnig setið sjálfur í Trans hring þar sem Gosi kemur í gegn og fræðir fólk.
Haldið Skyggnilýsingar, ýmsa viðburði og fræðslur tengd andlegum málefnum um allt land og utan landsteinana.
Mikið hefur verið leitað til hans vegna orku í húsum og barna sem eiga erfitt með að skilja sínar tengingar við andans heim.
Jón hefur sótt fjölda námskeiða erlendis í gengum árin.
Hann hefur mikið frætt fólk um einfaldleika tengingar við andans heim/orkuna.