https://alheimsorka.is/wp-content/uploads/2026/09/djupuslokun´2.jpg
661
1246
https://alheimsorka.is/wp-content/uploads/2018/05/logoalheimsorka-300x240.jpg
2026-09-29 19:35:012026-09-29 19:44:13Djúpslökun með Valgerði Bachmann Pure Deli og hraundis.isDJÚPSLÖKUN MEÐ VALGERÐI BACHMANN, Pure Deli og hraundis.is
15. október
Í fallegu umhverfi Guðmundarlundar
Húsið opnar kl. 17:30
Djúpslökun hefst stundvíslega kl. 18:00
Dyrum verður lokað kl. 18:00
Kvöld þar sem við komum saman til að slaka á, tengjast og eiga notalega stund saman.
Djúpslökunin sjálf tekur um 60 mínútur, en gefðu þér aðeins meiri tíma fyrir kvöldið. Fyrir og eftir slökunina gefst rými til að tengjast, spjalla og njóta samverunnar.
Ilmur úr íslenskri náttúru – hraundis.is
Hraundís.is færir náttúruna inn í rýmið með íslenskum ilmkjarnaolíum og skapar notalegt andrúmsloft í kringum slökunina.
Djús úr náttúrunni – puredeli.is
Þú færð ferskan Pure Deli djús með epli, sítrónu, engifer og spínati.
Djúpslökun • tenging • samvera • djús úr náttúrunni • ilmur úr náttúrunni
Valgerður leiðir djúpslökunina þar sem 17 ára reynsla, þekking og innsæi mætast í einni heild.
Hún er jógakennari og Yoga Nidra kennari, dáleiðari, markþjálfi, spákona og miðill og hefur einnig menntun og reynslu í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun.
Verð: 7.990 kr.
Bókun fer fram á alheimsorka.is
Þú þarft að taka með þér:
Jógadýnu
Teppi
Kodda ( ef þú vild )
Augnbindi
Komdu í þægilegum fötum.
Þú þarft ekkert að kunna og engu að ná, bara vera
Valgerður Bachmann, Pure Deli og hraundis.is
Leiðin þín
Litla stafabókin
Leiðin þín eru falleg og persónuleg spil sem hægt er að draga úr fyrir daginn eða vikuna. Hvert spil ber með sér létt og skemmtilegt ljóð sem getur gefið þér hugleiðingu, innblástur eða litla áminningu fyrir daginn.
Ljóðin eru eftir Valgerði Bachmann og samdi hún þau allt frá yngri árum sínum og fram að útgáfu spilanna.
Hönnun spilanna er einnig eftir Valgerði. Rósin framan á spilunum hefur sérstaka og persónulega merkingu fyrir hana. Hún tengir rósina við ömmu sína, Rósu, sem lést þegar Valgerður var mjög ung. Rósin er því tákn um minningu, kærleika og tengingu sem hefur fylgt Valgerði í gegnum lífið.
Þú getur dregið eitt spil fyrir daginn eða sjö spil fyrir vikuna og leyft orðunum að fylgja þér á þinni leið.
Nú getur þú pantað á alheimsorka.is
– Borgað með korti
– Sent með Dropp
Litla stafabókin er lítil bók fyrir litlar hendur. Hún er aðeins 8,5 × 8,5 cm, svo hún passar einstaklega vel í litlar barnahendur og er auðvelt fyrir barnið að halda á henni og fletta sjálft.
Á hverri opnu mætir barninu bókstafur öðrum megin og mynd hinum megin af einhverju sem byrjar á sama staf. Þannig fær barnið að kynnast íslenska stafrófinu í gegnum myndir og tengja stafina við hluti sem það þekkir.
Uppsetning og hönnun bókarinnar er eftir Valgerði Bachmann. Hugmyndin að Litlu stafabókinni varð til þegar Valgerður hannaði bókina fyrir son sinn. Úr varð lítil og persónuleg stafabók sem nú getur hjálpað fleiri litlum höndum að taka sín fyrstu skref inn í heim stafanna.
Litla stærðin gerir bókina sérstaklega krúttlega og skemmtilega – lítil bók fyrir litlar hendur.
Valgerður er með aðstöðu á höfuðborgasvæðinu
Spá og miðlun á staðnum
Spá og miðlun í síma eða skjátíma
(Þú færð upptöku af tímanum senda í tölvupósti)
Dáleiðslumeðferð 2 klukkutímar
( Getur verið 2 og hálfurtími, viðtal innifalið eftir meðferð )
Djúpaslökunar meðferð 60mín
Heilun og höfuðbeina og spjaldhryggs
Einning er hægt að bóka á https://noona.is/valgerdurbachmann


















