Hulda og töfrasteinninn. Eftir Valgerði Bachmann
kr.3.490
Hulda og töfrasteinninn
Eftir Valgerði Bachmann
„– Ég er ekki hrædd, ég sé ekki neitt, ég heyri ekkert, heldur Hulda áfram að hugsa.”
Sagan um Huldu og töfrasteininn er barnabók eftir Valgerði Bachmann. Hún segir frá Huldu sem er 7 ára og hefur alltaf átt erfitt með að sofna. Dag einn
fer Hulda með mömmu sinni að heimsækja afa og ömmu sem búa í Grundarfirði. Þar eiga sér stað atburðir sem verða til þess að fjölskyldan áttar
sig á dulrænum hæfileikum Huldu.
Sagan er fyrsta bókin í seríu um Huldu og hvernig hún tekst á við sérgáfu sína með auknum þroska.
Bókin er 64 blaðsíður með fallega myndskreytum myndum eftir Valgerði Bachmann. Myndir sem koma fram í bókinni eru t.d Lækjarskóli, Borgarnes, Grunarfjörður.
Ég byrjaði að skrifa söguna um Huldu þegar ég var 14 ára og leyfði mér þá að dreyma um að gefa hana út. Ég hefði verið til í að lesa svona bók á mínum yngri árum og er ég nokkuð viss um að hún hefði veitt mér betri sýn á alheiminn.
Mig langar að senda risastórt takk, knús og kærleik til þeirra sem hafa aðstoðað mig við að gefa bókina út. Ég hefði aldrei getað þetta nema fyrir þann stuðning sem ég fékk. Takk fyrir að hjálpa mér að láta drauminn minn rætast.
Kærleikskveðja og knús,
Valgerður Bachmann
13 in stock
Description