Valgerður Bachmann með aðstöðu á höfðuborgarsvæðinu
Ég er með aðstöðu á höfðuborgasvæðinu hægt er að bóka tíma á https://noona.is/valgerdurbachmann
Ég er með aðstöðu á höfðuborgasvæðinu hægt er að bóka tíma á https://noona.is/valgerdurbachmann
Ég hef verið með aðstöðu sjálf í þessi 16 ár og hefur það gengið súper vel. Ég tók þá ákvörðun í vor að vinna aftur bara hjá sjálfum mér með einkatíma, Skyggnilýsingar og námskeið og hætti hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands núna í vor og er þakklát fyrir að hafa aðstoðað félagið og stjórn mikið á þessum árum sem ég var þar og óska þeim alls hins besta í sínum og opna faðmin og hlakka til að taka á móti ykkur í minni aðstöðu.
Ég er með aðstöðu á höfðuborgasvæðinu hægt er að bóka tíma á https://noona.is/valgerdurbachmann
Skyggnilýsing með Valgerði Bachmann
Skyggnilýsingin verður haldin í samkomuhúsinu Staður á Eyrarbakka, Búðarstíg 7, fimmtudaginn 13.02.2025.
Húsið opnar kl 19:30.
Ekki verður hleypt inn eftir kl 20:00.
Hægt er að senda póst á alheimsorka@alheimsorka.is eða bjalla í 777-8006 með nafni og fjölda sæta, til að tryggja sér sæti, þar sem það er takmarkaður sætafjöldi.
Aðgangseyri 3.000 kr. Posi á staðnum.
Um Valgerði Bachmann
Valgerður Bachmann hefur starfað opinberlega í andlegum málefnum síðan 2009 og bíður upp á einkatíma í spá og miðlun, þar sem skoðað er þar sem fram undan er hjá viðkomandi svo eitthvað sé nefnt, einnig koma ættingjar og vinir í gegn. Valgerður er Reikimeistari, með Höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun og heilun. Er jóga og jóga Nidra kennari, haldið jóga námskeið fyrir börn og jóga Nidra tíma fyrir fullorðna. Haldið Sígaunanámskeið, Alheimsorkunámskeið, Leiðin Þín námskeið, Draumanámskeið, Teiknimiðilun og verið með Þróunarhópa hjá Sálarrannsóknarfélag Íslands, er Markþjálfi, hefur unnið mikið með börnum og fullorðnum tengt andlega málefnum, hreinsað hús og haldið skyggnilýsingar um landið. Gefið út Alheimsorku spilin, Written in the stars spilin, Leiðin þín, barnabókina Hulda og töfrasteinninn, Litlu Stafabókina og Litlu tölubókina.
Hlakka til að sjá og eiga yndislegan tíma með þér/ykkur
Valgerður Bachmann
Drauma námskeið með Valgerði Bachmann
Valgerður hefur lífsgleði og léttleika af fyrirrúmi í sinni kennslu. Þú færð kennslu um þínar draumfarir á virkilega gefandi og skemmtilegan hátt. Valgerður hefur kafað djúpt og rannsakað eigin drauma, einnig hefur áhugi hennar á draumum náð til annara. Valgerður hefur opnað augu fólks um mikilvægi þess að “hlusta” og skilja sína drauma.
Með hennar rannsóknarvinnu hefur hún náð að gera sína drauma markvissari og notar þá sem leiðarvísir. Hefur einstaklega einfalda og góða aðferð sem þú gætir nýtt þér í lífi þínu. ATH takmarkaður fjöldi
Skráning á alheimsorka@alheimsorka.is
Bollaspá – Gefa og þiggja
Sunnudagurinn 8. desember frá 14:00-16:00
Finnst þér gaman að spá í bolla?
Langar þig að æfa þig að spá í bolla og fá bollaspá frá öðrum?
Langar þig að hitta nýtt fólk?
Þá er þetta viðburður fyrir þig, dragðu með þér vinkonu eða vin og komið og njótið með okkur.
Komdu með þinn eigin bolla og við sjáum um kaffið í bollann þinn.
Það er hefð hjá Valgerði Bachmann að hitta sitt fólk og skoða saman í bolla. Valgerður ætlar að færa sína hefð lengra og bjóða upp á viðburð þar sem allir geta komið saman, með sinn bolla og bæði fengið að gefa og þiggja.
Valgerður Bachmann ætlar að labba á milli og aðstoða fólk ef þarf og halda utan um viðburðinn.
Mikilvægt
Koma með sinni eigin bolla
Góða skapið
Skrá þig/ykkur á viðburðinn á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.
( Takmarkaður fjöldi )
Aðgangseyri er 2.000 kr.
Hlökkum til að sjá þig/ykkur og eiga yndislega stund að spá í bolla.
Valgerður Bachmann og Sálarrannsóknarfélag Íslands.

Skyggnilýsing með Valgerði Bachmann verður í sal félagsins föstudaginn 13.desember.
Valgerður er spámiðill og vinnur með spil sér til hliðar. Valgerður hefur unnið að andlegum málefnum síðan 2009. Valgerður hefur haldið Jóga námskeið fyrir börn með greiningar og Jóga Nidra námskeið fyrir fullorðna. Hún er einnig Reikimeistari og hefur boðið upp á einkatíma í heilun og höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun.
Þar að auki er Valgerður sjálfstætt starfandi rithöfundur og grafískur hönnuður. Hún hefur hún gefið út barnabækurnar Hulda og töfrasteinninn, Litlu stafabókina og Litlu tölubókina. Andlegu spilin Leiðin þín, Alheimsorkuspilin og Written in the stars spilin Hún hefur einnig og hannað fyrir ýmis fyrirtæki.
Föstudagurinn 13.desember
Kl 20:00
Verð 3000kr
Félagsmenn 2000kr
Hægt er að tryggja sér sæti á skyggnilýsinguna. Til þess að tryggja sér sæti þarf að panta og greiða fyrir sætið hjá skrifstofu í síma 551-8130 eða á srfi@srfi.is og fá þar greiðsluupplýsingar.
ATH!! Sætið er einungis tryggt eftir að greiðsla berst.
H
Skyggnilýsing með Valgerði Bachmann
Skyggnilýsingin verður haldin í samkomuhúsinu á Grundarfirði, Sólvöllum 3, föstudaginn 15.11.2024.
Húsið opnar kl 19:30.
Ekki verður hleypt inn eftir kl 20:00.
Hægt er að senda póst á alheimsorka@alheimsorka.is eða bjalla í 777-8006 með nafni og fjölda sæta, til að tryggja sér sæti, þar sem það er takmarkaður sætafjöldi.
Aðgangseyri 3.000 kr. Posi á staðnum.
Valgerður Bachmann hefur haldið skyggnilýsingar um landið seinustu ár og hefur unnið við andlega málefni síðan 2009. Hún býður upp á einkatíma í Spá og miðlun í síma, myndsímtali, spá í email og Ársspá í email. Hefur haldið fjölda námskeiða tengd andlegum málefnum og einnig verið með kennslu. Allar upplýsingar um Valgerði er á alheimsorka.is
Hlakka til að sjá þig/ykkur föstudaginn á fullu tungli
Valgerður Bachmann
Valgerður verður með þróunarhóp í vetur í sex skipti sem er bæði fyrir lengra komna og byrjendur. Farið verður um víðan völl tengt alheimsorkunni með æfingum, fræðslu, spilum, draumum, heilun og miðlun. Valgerður leggur mikið upp úr því að allir fái að njóta sín og veitir stuðning til að þú finnir og eflir þína leið í andlegum málum.
Komdu með í skemmtilegan hóp þar sem við njótum saman að efla og styrkja okkur sjálf og hvort annað
Hópurinn hittist 1 sinni í viku á Miðvikudögum í 6 vikur frá 17:30-19:30
Valgerður Bachmann hefur starfað opinberlega í andlegum málefnum síðan 2009 og bíður upp á einkatíma í spá og miðlun. Valgerður er Reikimeistari, með Höfuðbeina og Spjaldhryggsjöfnun og heilun. Jóga og Jóga Nidra kennari, haldið jóga námskeið fyrir börn og jóga Nidra tíma fyrir fullorðna.
Haldið Sígaunanámskeið, Alheimsorkunámskeið og Draumanámskeið, er Markþjálfi, hefur unnið mikið með börnum og fullorðnum tengt andlega málefnum, verið með Þróunarhópa, hreinsað hús og haldið skyggnilýsingar um landið. Gefið út Alheimsorku spilin, Written in the stars spilin, Leiðin þín, barnabókina Hulda og töfrasteinninn, Litlu Stafabókina og Litlu tölubókina.
6.skipti
Hefst 6.nóvember
Miðvikudagar frá 17:30-19.30.
Verð 30.000 kr
Skráning hér https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130.
Bóka einkatíma á netinu: https://noona.is/saloisland
See less
Miðilsfundur og frumsýning þann 19. september hér: https://www.facebook.com/events/1291731115569431/
Aðrir sýningartímar og miðasala hér: https://bioparadis.is/mynd/372_the-gullsp-ng-miracle/
Guðlegur fyrirboði verður til þess að tvær systur kaupa íbúð í sænska smábænum Gullspång.
Þær verða fyrir áfalli þegar seljandinn tekur á móti þeim, hún lítur alveg eins og út eldri systir þeirra, sem svipti sig lífi sem ung kona.
Það sem byrjar sem óhugnanleg saga um fjölskyldusameiningu breytist brátt í Pandóruöskju þar sem líf kvennanna verður aldrei samt …
Skyggnilýsing með Valgerði Bachmann
Skyggnilýsingin verður haldin í elsta húsi á Hvanneyri, Skemmunni föstudaginn 13.09.2024.
Húsið opnar kl 19:30.
Ekki verður hleypt inn eftir kl 20:00.
Hægt er að senda á póst á alheimsorka@alheimsorka.is með nafni og fjölda sæta, til að tryggja sér sæti, þar sem það er takmarkaður sætafjöldi.
Aðgangseyri 3.000 kr
Greitt er við innganginn og verður posi á staðnum.
Valgerður Bachmann hefur haldið skyggnilýsingar um landið seinustu ár og hefur unnið við andlega málefni síðan 2009. Hún býður upp á einkatíma í Spá og miðlun, haldið fjöldi námskeiða tengd andlegum málefnum og einnig verið með kennslu. Allar upplýsingar um Valgerði er á alheimsorka.is
Staðsetning og bílastæði: Skemman er staðsett hjá kirkjugarðinum og kirkjunni á Hvanneyri. Hægt er að leggja hjá kirkjunni. Hægra megin við kirkjugarðinn er lítið gamalt hús sem er kölluð Skemman. Myndir af staðsetningu er að finna hér neðar.
Hlakka til að sjá þig/ykkur fösturdaginn þrettánda
Valgerður Bachmann