Um Alheimsorku
Valgerður Bachmann Spákona og Miðill
Valgerður Bachmann hefur starfað opinberlega í andlegum málefnum síðan 2009 og bíður upp á einkatíma í spá og miðlun. Valgerður er spákona og miðill, Reikimeistari, með Höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun og heilun, er sérfræðingur í klínískri dáleiðslu og Hugrænni endurforritun Markþjálfi, er jóga og jóga Nidra kennari, haldið jóga námskeið fyrir börn og jóga Nidra tíma fyrir fullorðna. Haldið Sígaunanámskeið, Alheimsorkunámskeið, Leiðin Þín námskeið og Draumanámskeið og verið með Þróunarhópa hjá Sálarrannsóknarfélag og núna í sinni eigin aðstöðu, hefur unnið mikið með börnum og fullorðnum tengt andlega málefnum, hreinsað hús og haldið skyggnilýsingar um landið. Gefið út Alheimsorku spilin, Written in the stars spilin, Leiðin þín, barnabókina Hulda og töfrasteinninn, Litlu Stafabókina og Litlu tölubókina.