Kaupmálar- Vörukaup alheimsorku
KAUPSKILMÁLAR – VÖRUKAUP
Upplýsingar um fyrirtækið
ALHEIMSORKA EHF.
Kennitala: 491220-0150
Heimilisfang vörusölu: Bílshöfði 16, bakatil, 110 Reykjavík
Sími: 777 8006
Þessir kaupskilmálar gilda eingöngu um vörukaup í vefverslun ALHEIMSORKA EHF., svo sem kaup á bókum og spilastokkum.
Skilmálarnir gilda ekki um námskeið, viðburði, spá og miðlun, meðferðir eða aðra þjónustu.
Verð og virðisaukaskattur
Öll verð í vefversluninni eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt (VSK).
Sendingarkostnaður bætist við þegar valin er sending með Dropp. Heildarverð pöntunar kemur skýrt fram áður en kaup eru staðfest.
Pantanir og greiðslur
Pantanir eru gerðar í gegnum vefverslunina alheimsorka.is.
Greiðslur fara fram með þeim greiðslumátum sem í boði eru í greiðsluferli vefverslunarinnar.
Pöntunarstaðfesting er send þegar kaup hafa verið staðfest.
Sendingar og afhending
Pantanir eru að jafnaði afgreiddar innan 2–4 virkra daga frá því að greiðsla hefur borist.
Sending með Dropp
Vörur eru sendar með Dropp. Sendingarkostnaður kemur fram áður en gengið er frá kaupum. Afhendingartími Dropp bætist við afgreiðslutíma pöntunar.
Ókeypis afhending
Einnig er hægt að sækja vörur án endurgjalds á Bílshöfða 16, bakatil, 110 Reykjavík, eftir samkomulagi.
Hafa skal samband áður en komið er að sækja vörur.
Ef tafir verða á afhendingu er kaupanda tilkynnt um það eins fljótt og unnt er. Lögbundin réttindi kaupanda vegna afhendingardráttar haldast óskert.
Réttur til að falla frá kaupum
Samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 hefur neytandi almennt 14 daga rétt til að falla frá vörukaupum á netinu án þess að gefa upp ástæðu.
Fresturinn hefst að jafnaði þegar kaupandi eða aðili sem hann tilnefnir hefur fengið vöruna afhenta.
Til að nýta réttinn skal kaupandi senda skýra tilkynningu á alheimsorka@alheimsorka.is áður en fresturinn rennur út.
Kaupandi skal senda vöruna til baka eða afhenda hana innan 14 daga frá því að hann tilkynnir að hann falli frá kaupum.
Ástand vara við vöruskil
Óskað er eftir að vörum sé skilað ónotuðum, í góðu ástandi og helst í upprunalegum umbúðum.
Kaupanda er heimilt að skoða vöru að því marki sem nauðsynlegt er til að kanna eiginleika hennar og virkni.
Ef vara hefur verið notuð eða meðhöndluð umfram það sem nauðsynlegt er getur kaupandi borið ábyrgð á verðrýrnun hennar. Sú verðrýrnun getur komið til frádráttar endurgreiðslu samkvæmt lögum.
Opnun umbúða ein og sér fellir ekki niður lögbundinn rétt til að falla frá kaupum
Framkvæmd vöruskila
Viðskiptavinir geta skilað vörum með eftirfarandi hætti:
– Sent vöruna til baka á Bílshöfða 16, bakatil, 110 Reykjavík.
– Komið sjálfir með vöruna á sama heimilisfang, eftir samkomulagi.
Viðskiptavinur greiðir sjálfur beinan sendingarkostnað við vöruskil þegar hann nýtir 14 daga rétt sinn til að falla frá kaupum.
Óskað er eftir að viðskiptavinir hafi samband á alheimsorka@alheimsorka.is áður en vörum er skilað, svo hægt sé að samræma framkvæmd skilanna
Endurgreiðslur
Endurgreiðslur fara fram með bankamillifærslu á reikning kaupanda, að fengnu sérstöku samþykki hans.
Ef kaupandi samþykkir ekki bankamillifærslu fer endurgreiðsla fram með sama greiðslumiðli og notaður var við kaupin.
Þegar kaupandi nýtir lögbundinn rétt sinn til að falla frá kaupum er kaupverð endurgreitt ásamt upphaflegum afhendingarkostnaði, eftir því sem lög kveða á um.
Ekki er skylt að endurgreiða viðbótarkostnað vegna dýrari afhendingarleiðar en ódýrustu almennu afhendingarleiðar sem boðið var upp á.
Endurgreiðsla fer fram án ástæðulauss dráttar og eigi síðar en 14 dögum frá því að tilkynning um að fallið sé frá kaupum berst.
Seljanda er þó heimilt að bíða með endurgreiðslu þar til varan hefur borist til baka eða kaupandi hefur sýnt fram á að hann hafi sent hana til baka, hvort sem gerist fyrr.
Endurgreiðslur eru án viðbótarkostnaðar fyrir kaupanda.
-
Gallaðar eða rangar vörur
Ef vara reynist gölluð, skemmd við afhendingu eða röng vara hefur verið afhent skal kaupandi hafa samband við ALHEIMSORKA EHF.
Sími: 777 8006
Um galla og úrræði kaupanda gilda neytendakaupalög nr. 48/2003.
Ef kvörtun vegna galla er réttmæt ber seljandi nauðsynlegan kostnað vegna úrbóta, þar á meðal viðeigandi sendingarkostnað.
Lögbundinn réttur kaupanda vegna galla helst óskertur þótt vara hafi verið opnuð eða notuð.
-
Afpöntun pantana
Ef kaupandi vill hætta við pöntun áður en hún hefur verið send skal hann hafa samband eins fljótt og unnt er á alheimsorka@alheimsorka.is.
Ef pöntun hefur þegar verið send gilda ákvæði um rétt til að falla frá kaupum og vöruskil, eftir því sem við á.
-
Kvartanir og ágreiningur
ALHEIMSORKA EHF. leggur áherslu á góða þjónustu og að leysa úr kvörtunum vegna vörukaupa eins fljótt og unnt er.
Ef ágreiningur leysist ekki geta neytendur eftir atvikum leitað til viðeigandi úrskurðaraðila á sviði neytendamála.
Um vörukaup gilda íslensk lög, þar á meðal lög um neytendasamninga og neytendakaupalög, eftir því sem við á.