Sambíó kringlunni 10.09.2026
Galdrarnir snúa aftur, og það kallar á búbblur! ![]()
Fimmtudaginn 10. september kl. 18:40 og 19:10 verður Practical Magic 2 sýnd í Búbblu-bíói í Sambíóunum Kringlunni. Fyrir sýningu verður bíógestum boðið upp á búbblur og því tilvalið að safna vinkonunum saman, skála fyrir góðu kvöldi og koma sér í rétta stemninguna áður en ljósin slokkna.
Valgerður Bachmann, spákona og miðill, verður á staðnum fyrir sýningu og spáir í spil fyrir gesti ![]()
Svo er um að gera að velja sætið vel, því eitt ákveðið sæti í salnum á nefnilega glaðning í vændum! ![]()
![]()
Búbblur, galdrar, spádómar og geggjuð stemning, fullkomið vinkonukvöld í bíó, hvað þarf meira? ![]()
![]()
Tryggðu þér miða á sambio.is




Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!