Skyggnilýsing Hafnarfjörður
Skyggnilýsing Hafnarfjörður
Nú er komið að þessu ![]()
Spennan er ROSALEGA
ÆSKU Hnútur í maga,
KÆRLEIKUR í maga,
tilhlökkun ÓMETANLEG ÞAKKLÆTI ÓÚTSKÝRANLEGT.
ALDREI bjóst ég við að ég mynd fá möguleikan á að hugsa um þetta.
04.06.2026 verð ég með skyggnilýsingu í MÍNUM GAMLA SKÓLA í Hafnarfirði. Gamla Lækjaskóla
Hafnarfjörður er STÓR hluti af minni sögu þegar kemur af andlegum málefnum, fólki sem er farið af þessari jörðu og hver ég er í dag. Hafnarfjörður opnaði fyrir mér óhugnanlega ” heim ” en aftur móti líka mín STÆRSTA LÆRDÓM fyrir mínum 17 árum í andlegum málefnum.
Skyggnilýsing með Valgerði Bachmann
Skyggnilýsing verður haldin í Nýsköpunarsetri Hafnarfjarðar, Skólabraut 3 (gamla Lækjarskólanum), fimmtudaginn 4. júní 2026.
Dagskrá
Húsið opnar kl. 18:40
Ekki verður hleypt inn eftir kl. 19:00
Skráning
Hægt er að senda tölvupóst á alheimsorka@alheimsorka.is eða hringja í 777-8006 með nafni og fjölda sæta til að tryggja sér sæti, þar sem sætafjöldi er takmarkaður.
Aðgangseyrir
4.000 kr
Um Valgerði Bachmann
Valgerður Bachmann hefur starfað opinberlega í andlegum málefnum síðan árið 2009 og býður upp á einkatíma í spá og miðlun.
Valgerður er spákona og miðill, Reiki-meistari og sérfræðingur í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun og heilun. Hún er einnig sérfræðingur í klínískri dáleiðslu og hugrænni endurforritun, markþjálfi, jóga- og Yoga Nidra kennari.
Hún hefur haldið jóganámskeið fyrir börn, Yoga Nidra tíma fyrir fullorðna, Sígaunanámskeið, Alheimsorkunámskeið, Leiðin þín námskeið og Draumanámskeið. Þá hefur hún einnig stýrt þróunarhópum hjá Sálarrannsóknarfélaginu.
Valgerður starfar nú í eigin aðstöðu og hefur unnið mikið með börnum og fullorðnum tengt andlegum málefnum, hreinsunum húsa og skyggnilýsingum víða um land.
Hlakka til að sjá þig/ykkur og eiga með ykkur yndislega stund.
Valgerður Bachmann
Valgerður er með aðstöðu á höfuðborgarsvæðinu og býður upp á einkatíma í:
Spá og miðlun
Dáleiðslu og hugræna endurforritun
Heilun
Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun
Hægt er að bóka tíma á: https://noona.is/valgerdurbachmann




Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!