Skyggnilýsing Akranes 13.11.2025
Skyggnilýsing með Valgerði Bachmann
Skyggnilýsingin verður haldin í Hestamannafélagi Dreyri Félagsheimilinu Æðarodda á Akranesi, fimmtudaginn 13.11.2025.
Húsið opnar kl 18:30
Ekki verður hleypt inn eftir kl 19:00.
Hægt er að senda póst á alheimsorka@alheimsorka.is eða bjalla í 777-8006 með nafni og fjölda sæta, til að tryggja sér sæti, þar sem það er takmarkaður sætafjöldi.
Aðgangseyri 4.000 kr. Posi á staðnum.
Um Valgerði Bachmann
Valgerður Bachmann hefur starfað opinberlega í andlegum málefnum síðan 2009 og bíður upp á einkatíma í spá og miðlun. Valgerður er spákona og miðill, Reikimeistari, með Höfuðbeina og spjaldhryggsjöfnun og heilun, er sérfræðingur í klínískri dáleiðslu og Hugrænni endurforritun Markþjálfi, er jóga og jóga Nidra kennari, haldið jóga námskeið fyrir börn og jóga Nidra tíma fyrir fullorðna. Haldið Sígaunanámskeið, Alheimsorkunámskeið, Leiðin Þín námskeið og Draumanámskeið og verið með Þróunarhópa hjá Sálarrannsóknarfélag og núna í sinni eigin aðstöðu, hefur unnið mikið með börnum og fullorðnum tengt andlega málefnum, hreinsað hús og haldið skyggnilýsingar um landið. Gefið út Alheimsorku spilin, Written in the stars spilin, Leiðin þín, barnabókina Hulda og töfrasteinninn, Litlu Stafabókina og Litlu tölubókina.
Hlakka til að sjá og eiga yndislegan tíma með þér/ykkur
Valgerður Bachmann





Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!