Dragðu spil með Alheimsorku spilunum
Bók
Viska og lærdómur er allsráðandi með þessu spili. Viskan á eftir að koma þér á hærra plan í því sem er þegar mikilvægt á þessaari stundu. Lærdómurinn er ekki einungis það sem við lærum í bókarformi, heldur í lífinu öllu. Taktu öllum ábendingum með opnum hug. Skoðaðu vel hvort það eigi ekki eftir að opna fyrir þér nýja sýn, eða að það sé verið að leiðbeina þér á aðra brautir en þú hafðir planað.
Ef spurt er já/nei: Já
Alheimsorkuspilin er til sölu hér,með íslenskum leiðbeiningum
Hönnuður og spákona: Valgerður Bachmann